4.5.2008 | 13:04
Vistaskipti
Ég hef notið góðs af gestrisni foreldra minna í nokkra daga, en þegar menn hafa flogið úr hreiðrinu einu sinni, verður það aldrei nema viðkomustaður í framtíðinni. Því fór ég á ról og skoðaði leigumarkaðinn af nokkurri kostgæfni, niðurstaðan var lítil íbúð í Hamrahlíð, og eftir smá þreifingar og þref fékkst hún á auðvitað allt of háa upphæð. Í gærkvöldi hlunkuðum við Hekla okkur svo inn í slottið með öllum þeim farangri sem því fylgir. Sigrún Ósk og Jens Pétur sýndu sérlegan drengskap og hetjulund í flutningunum og vil ég þakka þeim það kærlega. Þegar við Hekla stóðum svo ein eftir tók alvaran við. Seinasti íbúi í íbúðinni hefur nefnilega ekki verið mjög þrifin, eiginlega ekkert þrifin. Því tók við hjá okkur afskaplega langur einkaþáttur af hinu feikivinsæla sjónvarpsefni "Allt í drasli". Það verður þó að segjast eins og er að okkur finnst skemmtilegra að horfa bara á hann í sjónvarpinu. Á tímabili var ég meira að segja farin að sjá Heiðar snyrtir í hyllingum í anddyrinu hjá mér. En ekki kom þó sá ágæti maður heldur frekar ósennilegur staðgengill. Um miðjan dag birtist nefnilega tveggja metra heljarmenni fyrir framan útihurðina hjá mér, kraftakall mikill, járnsmiður og sjálfmenntaður blöðruprentari, vopnaður sturtuhreinsi og ljósaperum. Við Hekla hefðum ekki orðið kátari þó að okkur hefði verið tilkynnt að við værum tilnefnd til nóbelsverðlaunanna fyrir framlag okkar til friðarmála. Arkaði hann beint inn á baðherbergi og tók þar glímu við baðkarið, og alla púka þess. Það var löng og strembinn rimma , baðkarið varðist með kjafti og klóm, en ekki lét Jens Pétur það á sig fá, heldur beitti glæsilegum hælkrók á kvikindið. Hekla sýndi snilldartakta í skúringum, uppvaski og innröðun í fataskápa auk þess sem barnið raðaði skrautmunum og nytjahlutum um heimilið af slíkri smekkvísi að Vala Matt hefði dauðöfundað hana. En allt endaði þetta vel, ruslaskrímslið hefur verið tamið að mestu og sett í hlekki. Við tekur hið daglega líf á nýjum stað og með nýjum brag.
Ég vil þakka ykkur öllum sem hafið stutt mig, með orðum, gerðum eða þögn. Ég er afskaplega heppinn að eiga ykkur öll að.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.4.2008 | 00:01
Er til nokkuð fallegra
Er nokkuð yndislegra en að eiga svona fallegar og gáfaðar dætur, þær eru það besta sem lífið getur boðið upp á og eru föður sínum óendanleg uppspretta af ást og þakklæti.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.4.2008 | 22:56
Smíði 101
Í mörg ár hef ég verslað megnið af mínum húsbúnaði af hinu virta innanstokksmunafyrirtæki IKEA. Þetta frábæra fyrirtæki hefur staðið sig með miklum ágætum í að pranga inn á mig ótrúlegustu hlutum allt frá inniskóm upp í borðstofusett. Reyndar eru þetta allt ágætisvörur, sumar meira að segja mjög góðar en það er eitthvað sterilt við þetta allt samt. Eftir að ég hafði virt fyrir mér stofuna mína og komist að því að 87,6% af húsgögnunum í henni ættu systkini á 2 skrilljón heimilum víðsvegar um heiminn sá ég að tími væri kominn til aðgerða. Ég gerði nefnilega ákaflega merkilegar uppgötvanir um daginn.
Nr 1. Ég er smiður.
Nr 2. Ég kann að smíða.
Nr 3. Ég hef smíðað haugana af húsgögnum gegnum tíðina, en ekkert heim til mín.
Nr 4. Mér finnst gaman að teikna hluti
Nr 5. Mér finnst gaman að smíða hluti.
Eftir að þessar uppgötvanir höfðu svo gerjast í hausnum á mér í umtalsverðan tíma, kviknaði lítið kertaljós í huga mér ( samt bara svona lítið afmæliskerti). Ég lá afslappaður á stofugólfinu að reyna að telja hrukkurnar í hraunuðu loftinu, þegar sú hugsun laumaðist að mér að ég gæti bara smíðað mér húsgögn sjálfur. Ekki skorti mig aðstöðuna og það er bara hollt að láta reyna á kunnáttuna annað slagið, og smíða eitthvað annað en steingeldar eldhúsinnréttingar. Ég rauk því í tölvuna, teiknaði mér borð, fór og náði mér í efni og skrattaðist svo við smíðina nokkur kvöld.Stórsmiðjan og gúrmei kokkurinn Anna Margrét Kristjánsdóttir smíðaði sér líka borð, en þau eru talsvert öðruvísi og ansi hreint flott. En ég er sáttur við borðin mín, nú er bara að halda áfram að föndra.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.3.2008 | 23:34
Fjölgun hefur átt sér stað
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.3.2008 | 20:44
Fjölgun í fjölskyldunni
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2008 | 16:00
Páskafrí
Það er undarlegt fyrir vinnudýr að fara í frí. Maður fær undarlegustu hugdettur og kemst að löngu gleymdum hlutum. Til dæmis hef ég velt því fyrir mér hvort það færi sjónvarpinu ekki betur að standa á hlið, hvort að ég ætti að mála hringorma á ísskápinn og hvort ég ætti að búa til gestabók, sem væri með myndum af höndunum á öllum sem heimsækja mig. (gestabókin er reyndar nokkuð sniðug hugmynd). Ég hef komist að því að, sófinn er þægilegur, sjónvarpsdagskráin leiðinleg, internetið stórt og að páskaeggjaratleikir eru skemmtilegir. Hekla Bjarnadóttir faldi nefnilega páskaeggið mitt og lét mig síðan skrölta um alla íbúðina vitstola af sykurskorti í leit af vísbendingum um hvar það væri. Ef það hefði ekki verið fyrir feikimikla reynslu af ratleikjum síðan ég var lítill skátadrengur, lægi ég nú froðufellandi af bræði á gólfinu, seinasta vísbendingin var nefnilega svínslega erfið.
" Í þessum var ég lítil, fela þeir sig rauðir"
Þessi vísbending kostaði töluvert klór í haus. En að lokum hafðist þetta, enda mundi ég orð Baden Powells um að skáti væri þrautseigur og passaði því þrýstinginn. Barn og unglingur trítluðu léttstígar eftir vísbendingum Sigrúnar og fundu eggin sín á mettíma, enda afar vel gefnar báðar tvær og sólgnar í súkkulaði.
Af þyngd minni eru síðan voðvænlegar fréttir, því að hún virðist hafa beintengt sig við vísitölu neysluverðs. En ég læt það lítið á mig fá og held ótrauður áfram í sukkinu. Á eftir ætla ég að sökkva tönnunum í fjórða páskalambið sem slátrað er mér til heiðurs þessa páskana, og ég er jafnvel að hugsa um að smygla mér í það fimmta á morgunn. Einnig ætla ég að misnota veru mína hér á opinberum miðli og auglýsa eftir sjötta lambinu, þá hangikjeti. Helst af tveggja vetra sauð.
Annars vil ég óska öllum gleðilegra páska, og þakka kærlega fyrir mig.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2008 | 21:48
Margt að gerast, ekkert að frétta
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2008 | 21:51
Ég get vel sætt mig við þetta
You are Spider-Man
| You are intelligent, witty, a bit geeky and have great power and responsibility. |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)